Feel Good Jógúrtið inniheldur 4 tegundir góðgerla:
- Bifidobabacterium Species
- Lactobacillus Acidophilus
- Lactobacillus Delbrueckii Subsp. Bulgaricus
- Streptococcus Thermophilus
Náttúrulegt
Án allra aukaefna
Inniheldur Ayurvedic tengdar kryddjurtir
Eina sem þú þarft er 1L af mjólk (hvaða mjólk sem er) & 1 pakkningu af "Feel Good Jógúrtinu".
Aðferð:
1. Taktu litlu plastskálina upp úr jógúrtvélinni.
2. Helltu helmingnum af mjólkinni ofan í plastskálina og einum pakka af Feel Good Jógúrtinu.
3. Mikilvægt er að hræra þessu vel saman, (gott er að nota handþeytara). Duftið þarf að leysast 100% upp.
4. Bættu núna við hinum helmingnum af mjólkinni og hrærðu vel saman. (eins og í skrefi 3).
5. Settu lokið á plastskálina og reyndu að hafa sem minnst loft ofan í skálinni.
6. Helltu sjóðandi vatni ofan í jógúrtvélina (upp að hökunum).
7. Núna er komið að því að setja plastskálina ofan í jógúrtvélina.
8. Settu lokið á jógúrtvélina og látið standa við stofuhita í 10 klst.
(Styttri tími - mildara bragð, Lengri tími - súrara bragð.)
Jógúrtið geymist í allt að 5 daga inn í ísskáp.
Ráðlagður dagsskammtur: 200ml